logologoText

Ráðgjöf

Skipulag og skjöl ehf. veitir fyrirtækjum og stofnunum ráðgjöf í skjalastjórnun og þekkingarstjórnun.

Skjalastjórnun felur í sér vinnubrögð við að stjórna jafnt rafrænum skjölum sem pappírsskjölum. Markmið er að skjöl finnist er á þeim þarf að halda í dagsins önn. Fyrsta skrefið við upptöku skjalastjórnunar er gerð svokallaðrar þarfagreiningar(skjalaúttektar) á vinnustaðnum.

Veitt er aðstoð við gerð flokkunarkerfis, skjalavistunaráætlunar (lífhlaupi skjals hrint í framkvæmd) og skjalfests verklags almennt. Við eigum til grunn að skráðu verklagi sem hægt er að aðlaga að þörfum hvers viðskiptavinar. Markmiðið er bætt skjalavistun í samræmi við kröfur laga um sífellt betri þjónustu og upplýsingamiðlun.

Í þekkingarstjórnun er áherslan á söfnun, vistun og nýtingu innri þekkingar vinnustaðar. Markmiðið er að nýta þessa þekkingu til bættrar þjónustu eða til að efla samkeppnishæfni fyrirtækis. Skjalastjórnun er mikilvægur liður í þekkingarstjórnun. Við bjóðum uppá inngangsfræðslu í skjalastjórnun og þekkingarstjórnun.